Löng löng lööööng nótt :)
Já nóttin var skelfilega löng en mjög skemmtileg. Eftir vinnu á Vín og Skel, tók ég sprettinn heim á leið og skellti mér í dansgallann. Þetta skiptið met tími alveg hreint :) Síðan hljóp ég upp á grettisgötu til hennar Angelu minnar með kjól sem ég saumaði á hana, henti tveimur spennum í hárið og út again.. Enn og aftur tók ég sprettinn og hentist niður á Apótekið með smá púst stoppi í hraðbanka til að versla mér inneign.Þegar loksins var komið á endastöð var skellt sér á barinn með stjörnunni og kjaftað út í eitt. Amaretto í Sprite klikkar aldrei :) Arna, ég, Heiða, Anna Guðný, Lilja, Reynir o.s.frv o.s.frv dönsuðum fram í rauðann dauðann þangað til við ákváðum að gefast upp á músíkinni og leyfa okkur það að reyna aðra staði.
Þegar hér er komið við sögu var ég loksins búin að grípa andann þegar aftur var haldið af stað. Næst lágu leiðir okkar að English Pub þar sem reynt var við hið víðfræga lotterís hjól. Jú 1500 kall kostar að taka þátt og fyrir 1500 kall fengum við tvö skot sem var skipt bróðurlega á milli sín ;) En það verður að fylgja sögunni að síðast þegar ég tók þátt þá enduðum við vinkonurnar uppi með 12 stk bjór haha.. Einn öl og aftur haldið á miðin.
Næsti viðkomustaður B5, með fullri virðingu fyrir þeim eins flottur staður og þetta er, þá var músíkin ekki alveg að gera það fyrir mig.. Áfram upp Laugarveginn á Q-Bar og enn og aftur stutt stopp, alltof fámennt. Yfir á Prikið alltof fámennt. Þarna var það sem við ákváðum bara að fara alveg til baka og fórum á Hressó. Þar pikkuðum ég og Arna e-n Suður-Afrískan kafara upp sem við drógum með okkur á Apótekið. Þetta er allt saman mjög fyndin saga sem ég nenni nú ekki að fara nánar út í þar sem að þetta er meir og minna upptalning á því sem gerðist þetta kvöldið.
Eftir Apótekið slógum við þessu upp í kæruleysi. Ég, Arna og útlendingurinn skelltum okkur á Vöfflubarinn og létum svo gott heita :)
Arna mín takk innilega fyrir alveg frábært kvöld. Ég skemmti mér alveg ótrúlega vel ;)
24. mars 2008 klukkan 18:08
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Hrafnhildur Ýr Rafnsd

Bið að heilsa Sigga