Páskadagur
Jæja þá er bara að koma sér í gallann.. Fyrst er það 3 tíma reiðtúr, við mæðgurnar ætlum að hafa það gott í dag :)
Svo myndi maður nú venjulega fara í páskadags kvöldverð hjá foreldrunum en ég þarf að vinna svo að það er eins gott að ég fái eitthvað spes að borða þar í kvöld takk fyrir :)
Í kvöld ætla ég svo að fara til hennar Örnu minnar og fá mér sirka einn eða tvo, get ekki beðið eftir því. Það er alltaf svo gott að hitta hana. Elska þig í tætlur Arna mín.. Því miður mun ég samt ekki taka neinar myndir þetta kvöldið þar sem ég tapaði myndavélinni minni á föstudaginn. Ef e-r rakst á Sony Cybershot myndavél á föstudaginn á annnaðhvort B5, Hressó, Cafe Paris eða English Pub endilega látið mig vita ;)
23. mars 2008 klukkan 11:39
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
