Góðann daginn :)

Heyrðu jú ég er á lífi.. Þetta sumar er bara búið að vera "crazy" :) Ég er sem sagt búin að vera að vinna í júniform og hjá Selmu Ragnars í sumar og það er búið að vera alveg hreint geggjað :) Er búin að læra geðveikt á þessu. Ég meira að segja tók þátt í hönnunarkeppni á ísmótinu 2007. Það hefði ég aldrei gert ef að hún Selma mín hefði ekki hótað að reka mig ef ég tæki ekki þátt :)  En ég held að það hafi nú bara meira verið í gríninu :) En ég tók sem sagt þátt og var tilnefnd ein af fjórum til verðlauna af tíu keppendum en vann því miður ekki :( Kannski næst ;) En það var bara ein sem hreppti verðlaun. Svo er ég bara að keppast við það núna að rýma íbúðin mína fyrir nýju eldhúsi og að reyna að græja litla herbergið mitt, því ef ég næ að græja það get ég kannski unnið sjálfstætt heima hjá mér með skólanum í vetur :) Það væri náttúrulega bara geggajað.. En ég lofa að láta heyra í mér sem allra fyrst. Hendi inn einhverjum myndum af keppninni og svona ;)
05. september 2007 klukkan 23:08
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Margrét Rós skrifar ...
hva!! ég hélt að þessi síða væri dáin!!

Hvenær ætlið þið skötuhjú að kíkja í heimsókn??
07. september 2007 klukkan 07:18
Hrafnhildur Ýr Rafnsdóttir skrifar ...
Heyrðu það er nú bara spr. um að fara kíkja á það :) Það verður náttúrulega að gerast fyrir áramót helst þar sem ég er að fara að taka sveininn núna eftir áramót :)
07. september 2007 klukkan 11:56
Freyja skrifar ...
Gaman að heyra að allt hafi verið svona gaman í vinnunum frábært heldurðu svo áfam í haust eða?
Svo áttu að fara vera meira á msn ekkert gaman þegar svona fáir eru á msn þegar maður er í útlöndum búhúúúú
11. september 2007 klukkan 18:30
Ester skrifar ...
þú ert svo mikil ofurkona Hrabba... það rennur um æðar þínar vestfirskt blóð, það er ekki spurning... jæja ég sakna þin og hugsa um þig á hverjum degi:) lofa að koma í heimsókn þegar ég stoppa lengur en í einn dag í rvk:/
11. september 2007 klukkan 21:15
Hrabba skrifar ...
Ég er allavega ennþá hjá Selmu sem er alveg ótrúlega gaman og Birta ætlar að hringja í mig þegar vantar.. En ég lofa að fara að detta meira inn á msn. Málið er bara að tölvan mín var að hrynja, móðurborðið hrundi sem er ekkert skrítið þar sem hún er orðin 6 ára gömul hehe :)
En Ester ég sakna þín sko líka í tætlur... Jú are mæ sólmeit og það er sko eins gott að þú farir að kíkja í heimsókn næst þegar þú kemur..
12. september 2007 klukkan 13:24
Ester skrifar ...
Ég sver ég geri það ... er bara wimp sem kann ekki að keyra í rvk og er alltaf með kallinn í eftirdragi;) hohoho,,
18. september 2007 klukkan 08:58

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Moi

  • Nafn: Hrafnhildur Ýr Rafnsd
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Í námi, þjónn á veitingarstaðnum Vín og Skel og svo er ég að vinna í Júniform á Hverfisgötunni
  • Um mig: Já er er 23 ára Vestfjarðarmær búsett í borginni. Kom hingað eftir stúdentspróf og ákvað að fara í iðnskólann í eitt ár til að hvíla mig á bókunum en þetta eina ár endaði svo í fjórum árum og nú er ég að útskrifast sem kjólasveinn og stefni á að taka klæðasveininn líka og svo meistarann í báðum fögum. Svo ef e-n strákinn þarna úti vantar smóking eða kjólföt þá er það á stefnuskránni. Annars er ég bara mjög hress og ánægð með lífið... :) Á mér fullt af áhugamálum eins að sauma, hestar, snjóbretti og bara öll útivera, að vera með mínum frábæru vinum, dansa og syngja, teikna os.frv :)
  • Annað: "There´s no point in being grown up if you can´t be childish sometimes"

Könnun

Hver ert þú?

Klukkan

Spjallkubbur

..Augnablik

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...