Aftur í sveitina
Já ég er að íhuga að kíkja í sveitina ;) Þannig er nú það að ég á meri fyrir vestan sem ég verð að fara að koma hingað suður og ég er að spá í að gera það í vikunni.. Það verður þá keyrt vestur og keyrt strax til baka aftur. Svo er það helgin 23-25 þá er ættarmót hjá mér á Drangsnesi :) Það verður náttúrulega ekkert nema fjör.. Alltaf fjör þegar þessi ætt hittist :) Annars er það að frétta af mér að ég er bara að vinna og vinna endalaust. En það vonandi minnkar fljótlega, það vantar svo fastráðna manneskju á móti mér þannig að ég verð að vinna doldið meir. En ekki meira blogg í bili, bara svona aðeins að láta vita af mér
10. júní 2007 klukkan 11:09
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
