24mars

Löng löng lööööng nótt :)

Já nóttin var skelfilega löng en mjög skemmtileg. Eftir vinnu á Vín og Skel, tók ég sprettinn heim á leið og skellti mér í dansgallann. Þetta skiptið  met tími alveg hreint :)  Síðan hljóp ég upp á grettisgötu til hennar Angelu minnar með kjól sem ég saumaði á hana, henti tveimur spennum í hárið og út again.. Enn og aftur tók ég sprettinn og hentist niður á Apótekið með smá púst stoppi í hraðbanka til að versla mér inneign.
Þegar loksins var komið á endastöð var skellt sér á barinn með stjörnunni og kjaftað út í eitt. Amaretto í Sprite klikkar aldrei :) Arna, ég, Heiða, Anna Guðný, Lilja, Reynir o.s.frv o.s.frv dönsuðum fram í rauðann dauðann þangað til við ákváðum að gefast upp á músíkinni og leyfa okkur það að reyna aðra staði.
Þegar hér er komið við sögu var ég loksins búin að grípa andann þegar aftur var haldið af stað. Næst lágu leiðir okkar að English Pub þar sem reynt var við hið víðfræga lotterís hjól. Jú 1500 kall kostar að taka þátt og fyrir 1500 kall fengum við tvö skot sem var skipt bróðurlega á milli sín ;) En það verður að fylgja sögunni að síðast þegar ég tók þátt þá enduðum við vinkonurnar uppi með 12 stk bjór haha..  Einn öl og aftur haldið á miðin.
Næsti viðkomustaður B5, með fullri virðingu fyrir þeim eins flottur staður og þetta er, þá var músíkin ekki alveg að gera það fyrir mig.. Áfram upp Laugarveginn á Q-Bar og enn og aftur stutt stopp, alltof fámennt. Yfir á Prikið alltof fámennt. Þarna var það sem við ákváðum bara að fara alveg til baka og fórum á Hressó. Þar pikkuðum ég og Arna e-n Suður-Afrískan kafara upp sem við drógum með okkur á Apótekið.  Þetta er allt saman mjög fyndin saga sem ég nenni nú ekki að fara nánar út í þar sem að þetta er meir og minna upptalning á því sem gerðist þetta kvöldið.
Eftir Apótekið slógum við þessu upp í kæruleysi. Ég, Arna og útlendingurinn skelltum okkur á Vöfflubarinn og létum svo gott heita :)
Arna mín takk innilega fyrir alveg frábært kvöld. Ég skemmti mér alveg ótrúlega vel ;)
24. mars 2008 klukkan 18:08
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
1 athugasemd
23mars

Páskadagur

Jæja þá er bara að koma sér í gallann.. Fyrst er það 3 tíma reiðtúr, við mæðgurnar ætlum að hafa það gott í dag :)
Svo myndi maður nú venjulega fara í páskadags kvöldverð hjá foreldrunum en ég þarf að vinna svo að það er eins gott að ég fái eitthvað spes að borða þar í kvöld takk fyrir :)
Í kvöld ætla ég svo að fara til hennar Örnu minnar og fá mér sirka einn eða tvo, get ekki beðið eftir því. Það er alltaf svo gott að hitta hana. Elska þig í tætlur Arna mín..  Því miður mun ég samt ekki taka neinar myndir þetta kvöldið þar sem ég tapaði myndavélinni minni á föstudaginn. Ef e-r rakst á Sony Cybershot myndavél á föstudaginn á annnaðhvort B5, Hressó, Cafe Paris eða English Pub endilega látið mig vita ;)

23. mars 2008 klukkan 11:39
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
1 athugasemd
02október

Hrafnhildur Ýr Athafnamanneskja Með Meiru

Jú það er sko í nógu að snúast þessa dagana. Jú sko þannig er það að ég er náttúrulega að vinna á Vín og Skel eins og ég hef áður nefnt. En þannig er nú það að maður getur aldrei sagt nei svo að núna er ég líka að vinna á fullu í Júníform og hjá Selmu. Því eins og allir vita þá fer allt að verða brjálað í jólapöntunum. Ofan á þetta er ég svo að telja í strætó.. Jú þá sit ég í strætó frá 6 um morgunin til 12 eða 15 og það sem að ég geri er að telja hversu margir koma inn og hversu margir fara út. :) Stuð það eða þannig. Svo er maður náttúrulega byrjaður hjá einaþjálfara fyrir jólin og að mála allt heima hjá sér fyrir jólin :) En þó svo að það sé svona brjálað að gera myndi ég ekki vilja hafa það öðruvísi :) Svo er ég alltaf að lofa upp í ermina á mér einhverjum myndum en ég lofa að það fer að styttast í þær ;) En já ástæðan fyrir bloggleysinu er að tölvan mín hrundi en ég lofa að gera mitt besta til að láta það ekki stöðva mig :)
02. október 2007 klukkan 18:31
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
7 athugasemdir
05september

Góðann daginn :)

Heyrðu jú ég er á lífi.. Þetta sumar er bara búið að vera "crazy" :) Ég er sem sagt búin að vera að vinna í júniform og hjá Selmu Ragnars í sumar og það er búið að vera alveg hreint geggjað :) Er búin að læra geðveikt á þessu. Ég meira að segja tók þátt í hönnunarkeppni á ísmótinu 2007. Það hefði ég aldrei gert ef að hún Selma mín hefði ekki hótað að reka mig ef ég tæki ekki þátt :)  En ég held að það hafi nú bara meira verið í gríninu :) En ég tók sem sagt þátt og var tilnefnd ein af fjórum til verðlauna af tíu keppendum en vann því miður ekki :( Kannski næst ;) En það var bara ein sem hreppti verðlaun. Svo er ég bara að keppast við það núna að rýma íbúðin mína fyrir nýju eldhúsi og að reyna að græja litla herbergið mitt, því ef ég næ að græja það get ég kannski unnið sjálfstætt heima hjá mér með skólanum í vetur :) Það væri náttúrulega bara geggajað.. En ég lofa að láta heyra í mér sem allra fyrst. Hendi inn einhverjum myndum af keppninni og svona ;)
05. september 2007 klukkan 23:08
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
6 athugasemdir
05júlí

Jæja maður er á lífi :)

Takk innilega fyrir öll kommentin.. :) Það er er búið að vera að gerast hjá mér er nú ekki ansi margt fyrir utan vinnu. Fór jú á ættarmót þann 23-25 sem  var alveg ótrúlega gaman. Kynntist fullt af forvitnilegum ættingjum þó að marga sem ég þekki vel hafi vantað.. Krummi var þar kátur á kantinum alltaf gaman af honum og hann Siggi minn vakti mikla lukku eins og alls staðar :) Svo erum við búin að vera í þvílíku basli varðandi Sjóvá og tryggingu sem við áttum að fá fyrir hálfu ári síðan en það virðist nú allt vera að smella loksins :) Svo er ég bara hamingjusöm og ástfangin út í gegn á leiðinni til spánar einhvern tímann í þessum mánuði og ekkert meira en gott um það að segja :)
05. júlí 2007 klukkan 10:54
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
7 athugasemdir
19júní

19. Júní, dagur kvenna og dagurinn minn :)

Jáhh ég er afmælisbarn í dag :) Er búin að fá tvær gjafir frá honum Sigga mínum .. Vikuferð til útlanda með honum sjálfum og nudd hjá Mecca Spa.. Hann er svo mikið yndi ;) Svo fórum við á Laugarvatn til að ná í tjaldið okkar þar sem við erum að fara á ættarmót um helgina.. En þessi dagur fer ekki í að blogga.. Takk innilega fyrir allar kveðjurnar kiss kiss
19. júní 2007 klukkan 17:20
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
8 athugasemdir
14júní

Mig vantar aðstoð

Jú þannig er að það að ég er að fara á ÆTTARMÓT þann 23-25 júní og við systkinin og makar eigum að vera með skemmtiatriði. Ég hef ekki humgynd um hvað skal gera.. Langar náttúrlega til þess að við verðum lang fyndnust og skemmtilegust en hugmyndaflugið er ekki alveg að gera sig akkúrat núna :(  Þannig að ef að þið hafið einhverja brilliant hugmynd þá endilega tjáið ykkur.. Það væri gaman að fá smá aðstoð

14. júní 2007 klukkan 12:20
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
1 athugasemd
10júní

Aftur í sveitina

Já ég er að íhuga að kíkja í sveitina ;) Þannig er nú það að ég á meri fyrir vestan sem ég verð að fara að koma hingað suður og ég er að spá í að gera það í vikunni.. Það verður þá keyrt vestur og keyrt strax til baka aftur. Svo er það helgin 23-25 þá er ættarmót hjá mér á Drangsnesi :) Það verður náttúrulega ekkert nema fjör.. Alltaf fjör þegar þessi ætt hittist :) Annars er það að frétta af mér að ég er bara að vinna og vinna endalaust. En það vonandi minnkar fljótlega, það vantar svo fastráðna manneskju á móti mér þannig að ég verð að vinna doldið meir. En ekki meira blogg í bili, bara svona aðeins að láta vita af mér
10. júní 2007 klukkan 11:09
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Engin athugasemd
08júní

Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir

Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir

Megi hún hvíla í friði..

08. júní 2007 klukkan 14:00
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Engin athugasemd
05júní

Einn dagur til stefnu..

Ég held að ég sé svona nokkurn veginn komin með þetta :) Ég er svona sirka komin með niðurstöðuna á það hvað ég á að gera fyrir hann sigga minn :) Fer náttúrulega ekki að blaðra því hér ekki fyrr en á fimmtudaginn kannski, það verður hrikalega gaman hjá okkur.. Og já merkilegt frá því að segja að hún móðir mín er að fara að útskrifast :) Jamm hún útskrifast úr kennaraháskólanum þann 16 júní, hrikalega stolt af múttu minni.. :) Við ætlum náttúrulega öll systkinin að mæta í útskriftina og svo ætlar hún að bjóða okkur doldið sem er náttúrulega líka leyndó þar sem hinir krakkarnir vita ekki afþví ;) Svo ætlum við Siggi að bjóða henni út að borða og Frikka, Dagur og Heiðrún fljóta náttúrulega með ;)

En ég hef eiginlega ekkertað segja, bara svona að láta vita af mér ;)

05. júní 2007 klukkan 13:15
Hrafnhildur Ýr Rafnsd
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Moi

  • Nafn: Hrafnhildur Ýr Rafnsd
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Í námi, þjónn á veitingarstaðnum Vín og Skel og svo er ég að vinna í Júniform á Hverfisgötunni
  • Um mig: Já er er 23 ára Vestfjarðarmær búsett í borginni. Kom hingað eftir stúdentspróf og ákvað að fara í iðnskólann í eitt ár til að hvíla mig á bókunum en þetta eina ár endaði svo í fjórum árum og nú er ég að útskrifast sem kjólasveinn og stefni á að taka klæðasveininn líka og svo meistarann í báðum fögum. Svo ef e-n strákinn þarna úti vantar smóking eða kjólföt þá er það á stefnuskránni. Annars er ég bara mjög hress og ánægð með lífið... :) Á mér fullt af áhugamálum eins að sauma, hestar, snjóbretti og bara öll útivera, að vera með mínum frábæru vinum, dansa og syngja, teikna os.frv :)
  • Annað: "There´s no point in being grown up if you can´t be childish sometimes"

Könnun

Hver ert þú?

Klukkan

Spjallkubbur

..Augnablik

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...